Fotbolti.net
04.08.08 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Real Madrid lánar Daniel Parejo til QPR (Staðfest)

Parejo í leik með Real Madrid gegn Hamburg í fyrradag.

Parejo í leik með Real Madrid gegn Hamburg í fyrradag.

Canon

Mynd: Getty Images

Spænska stórliðið Real Madrid hefur lánað táninginn Daniel Parejo til Queens Park Rangers alla komandi leiktíð.
Parejo er 19 ára gamall miðjumaður sem skoraði sigurmark Real Madrid gegn Hamburg á Emirates Cup í Lundúnum á laugardaginn en markið kom á 85. mínútu leiksins.

Hann hefur nú verið lánaður til QPR sem er ríkasta knattspyrnufélag heims en Ian Dowie knattspyrnustjóri liðsins er að setja saman sterkan leikmannahóp fyrir baráttuna í vetur.

,,Daniel Parejo hefur verið lánaður til Queens Park Rangers í eitt ár,\" sagði í yfirlýsingu Real Madrid á vefsíðu félagsins í gær.

,,Þessi miðjumaður unglingaliðsins mun því spila í Championship deildinni á næstu leiktíð, aþr sem hann mun halda áfram að þróa hæfileikaa sína.\"

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.