04.08.08 - 16:31
Davíð Örn Atlason
Danny Simpson á láni frá Man Utd til Blackburn (Staðfest)

Danny Simpson

Mynd: Getty Images

Danny Simpson

Mynd: Getty Images
Paul Ince, knattspyrnustjóri Blackburn hefur fengið liðsstyrk fyrir komandi átök í ensku úrvalsdeildinni því að Danny Simpson er kominn á lánssamning út leiktíðina frá Englands- og Evrópumeisturum Manchester United.
Ince gerði samning við Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóra Manchester United um að fá Simpson, sem að má ekki spila gegn United.
Simpson hefur spilað nokkra leiki á undirbúningstímabilinu með United og var hann í samkeppni við Wes Brown og Gary Neville um hægri bakvarðarstöðuna hjá liðinu.
Þetta þýðir að Ferguson hefur engar áhyggjur af líkamsástandi Neville, sem var meiddur allt síðasta tímabil.
Simpson hafði áður verið lánaður til Sunderland og Ipswich og er hann þriðji leikmaðurinn sem gengur til liðs við Blackburn en áður höfðu þeir Paul Robinson og Carlos Villanueva gert slíkt hið sama.

Heimild: Setanta