Fotbolti.net
04.08.10 - 14:16
Magnús Már Einarsson

Markvörður frá Úganda til ÍBV (Staðfest)

Tonny Mawejje.

Tonny Mawejje.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

ÍBV hefur fengið markvörðinn Abel Dhaira til liðs við sig en hann kemur til félagsins frá Úganda.
,,Við erum búnir að semja við hann fyrir næstu tvö ár og þetta er framtíðarhugsun,\" sagði Heimir Hallgrímsson þjálfari ÍBV við Fótbolta.net í dag.

Abel er í Vestmannaeyjum þessa dagana en Heimir reiknar ekki með að hann komi við sögu fyrr en á næsta tímabili.

,,Hann er meiddur þessa stundina og verður ekki hjá okkur nema kannski í einn mánuð í viðbót.

Eyjamenn hafa góða reynslu af því að fá leikmenn frá Úganda til félagsins undanfarin ár. Andrew Mwesgiwa og Augustine Nsumba léku báðir með liðinu áður en þeir fóru síðastliðið haust og núna er Tonny Mawejje á sínu öðru tímabili í Eyjum.

,,Þetta er harðduglegir og heiðarlegir strákar. Þeir eru kristnir og það er ekkert vesen á þeim,\" sagði Heimir en Tonny er samningsbundinn ÍBV út 2012.

,,Tonny er með tveggja ára samning en það er verið að spyrjast fyrir hann um þannig að maður veit ekki hvað gerist eftir tímabil.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.