Fotbolti.net
04.08.10 - 21:51
Einar Sigurðsson
Ítalska deildin

Ezequiel Munoz til Palermo (Staðfest)

Ezequiel Munoz (til vinstri).

Ezequiel Munoz (til vinstri).

Canon

Mynd: Einar Sigurðsson

Palermo hefur staðfest komu argentíska unglingsins Ezequiel Munoz sem kemur frá stórliðinu Boca Juniors í heimalandinu.
Palermo missti eins og kunnugt er sterkan miðvörð úr sínum röðum fyrr í sumar þegar hinn stórefnilegi Simon Kjær fór í þýsku Bundesliguna til Wolfsburg.

Þessi 19 ára gamli leikmaður, sem skrifaði undir fimm ára samning, er talinn einn efnilegasti miðvörður í Argentínu.

Real Madrid hafði hug á að kaupa Munoz en það rann út í síðasta mánuði og Palermo réðu á vaðið.

Munoz var aðeins 17 ára gamall þegar hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir Boca.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.