Fotbolti.net
04.09.08 - 17:54
Magnús Már Einarsson

Kevin Keegan hættur sem stjóri Newcastle (Staðfest)

Kevin Keegan hættur sem stjóri Newcastle (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kevin Keegan hefur sagt upp störfum sem knattspyrnustjóri Newcastle eftir einungis átta mánuði í starfinu.
Framtíð Keegan hefur verið í óvissu í þessari viku en á þriðjudag bárust fréttir þess efnis að hann væri hættur sem stjóri Newcastle.

Nú hefur þetta verið staðfest en fyrr í dag bárust fregnir af því að Keegan hefði ekki mætt á æfingu hjá liðinu í þrjá daga í röð.

,,Ég hef lagt mjög hart að mér til að finna leið fram á við með stjórnarmönnunum en því miður hefur það ekki reynst mögulegt,\" sagði Keegan í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í dag.

,,Það er mín skoðun að knattspyrnustjórar verði að hafa réttinn til að stjórna og að félagið eigi ekki að þröngva leikmanni upp á stjórann sem hann vill ekki fá.\"

,,Það er mín heitasta ósk að Newcastle United muni vegna vel í framtíðinni og ég er mjög leiður fyrir hönd leikmannanna, starfsfólksins og aðallega stuðningsmannanna. Ég á ekki annars kostar völ en að hætta.\"

Keegan stýrði Newcastle frá 1992-1997 en hann tók aftur við stjórnartaumunum hjá félaginu í janúar síðastliðnum eftir að Sam Allardyce var rekinn. Nú er hins vegar ljóst að þessi endurkoma hans lifði ekki lengi eða einungis í nokkra mánuði.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.