04.11.08 - 16:01
Alexander Freyr Tamimi
Hrefna Huld Jóhannesdóttir í Stjörnuna (Staðfest)

Hrefna Huld stuttu eftir undirskriftina í dag

Mynd: Fótbolti.net - Alexander Freyr Einarsson

Hrefna í leik með KR í sumar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hrefna Huld Jóhannesdóttir fyrirliði kvennaliðs KR er genginn til liðs við Stjörnuna eftir að hafa skrifað undir þriggja ára samning við Garðabæjarfélagið fyrr í dag. Hrefna mun spila í treyju númer 10.
Hrefna Huld hefur spilað níu A-landsleiki og skorað í þeim tvö mörk en hún skoraði 19 mörk í 18 leikjum fyrir KR í Landsbankadeild kvenna í ár, ásamt fjórum mörkum í VISA bikarnum. Ásamt KR hefur hún leikið með Breiðabliki og ÍBV á Íslandi en einnig hefur hún spilað í Noregi.
Hrefna kveðst vera mjög ánægð með félagsskiptin og hlakkar hana til að taka þetta verkefni að sér.
,,Mér líður bara mjög vel. Þetta verður skemmtilegt verkefni og þetta leggst bara mjög vel í mig,” sagði Hrefna í viðtali við Fótbolta.net stuttu eftir að hún hafði skrifað undir samning sinn við Stjörnuna.
,,Ég er búin að vera mörg góð ár í KR og mér fannst bara tími til kominn að breyta til og fara eitthvað annað.”
,,Stjarnan er með marga góða leikmenn og mikið af ungum og efnilegum stelpum og það verður bara gaman að blandast inn í þann hóp.”
Ljóst er að Stjarnan ætlar sér stóra hluti í nánustu framtíð en Hrefna Huld var þriðji markahæsti leikmaður Landsbankadeildarinnar á seinasta tímabili á eftir Margréti Láru Viðarsdóttur og Rakeli Hönnudóttur og mun því reynast mikill liðsstyrkur.
Einar Páll Tamimi, formaður meistarflokksráðs kvenna hjá Stjörnunni, segist vera mjög ánægður með liðsstyrkinn og stefnir hann að því að fá fleiri leikmenn í sama gæðaflokki til að gera Stjörnuna að eins samkeppnishæfu liði og unnt er.
,,Ég er auðvitað mjög ánægður með að fá Hrefnu. Við höfum sett okkur mjög metnaðarfull markmið fyrir næstu ár og næstu tímabil og skilgreint hvað við þurfum til að ná þeim markmiðum. Hún verður mjög mikilvægur hlekkur í þeirri keðju,” sagði Einar Páll við Fótbolta.net í dag.
,,Við erum í viðræðum við fleiri leikmenn og eigum von á því að það fari að skila einhverri niðurstöðu á næstu dögum. Það var alveg ljóst í lok síðasta tímabils að við vorum ekki með stóran leikmannahóp, þó svo við séum mjög ánægð með þá leikmenn sem kláruðu tímabilið með okkur og mynda góðan kjarna. Því þyrftum að styrkja liðið ef við ætluðum að setja markið hærra.Við höfum verið að vinna í því síðan og við vonumst til að sjá enn frekari árangur af þeirri vinnu þó svo þetta hafi verið stórt og mikilvægt fyrsta skref.
Ásamt Hrefnu hefur Stjarnan einnig fengið til sín Írisi Ósk Valmundsdóttur fyrrum leikmann meistarflokks Fjölnis og leikmann U-19 landsliðs Íslands, en hún var valin efnilegasti leikmaður Fjölnis á lokahófi félagsins 2008. Telur Einar Páll að fleiri leikmenn gætu rennt hýru auga til Stjörnunnar?
,,Ég tel að liðið okkar hljóti að fara að verða mjög áhugaverður kostur fyrir metnaðarfulla leikmenn sem eru að hugsa sér til hreyfings eða leita sér að liði,” sagði hann að lokum við Fótbolta.net