Fotbolti.net
04.11.08 - 17:47
Hafliði Breiðfjörð

Íris Ósk Valmundsdóttir í Stjörnuna (Staðfest)

Íris Ósk í baráttu við Hrefnu Huld í Landsbankadeildinni í sumar. Þær eru orðnar liðsfélagar í Stjörnunni.

Íris Ósk í baráttu við Hrefnu Huld í Landsbankadeildinni í sumar. Þær eru orðnar liðsfélagar í Stjörnunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Íris Ósk Valmundsdóttir er gengin í raðir Landsbankdeildarliðs Stjörnunnar frá Fjölni en þetta staðfesti Einar Páll Tamimi, formaður meistarflokksráðs kvenna hjá Stjörnunni við Fótbolta.net í dag.
Íris Ósk er einn af efnilegri leikmönnum Landsbankadeildarinnar og spilaði flesta leiki Fjölnis í Landsbankadeildinni í sumar þrátt fyrir að vera aðeins 16 ára gömul. Hún er nýlega orðin 17 ára.

Íris hefur þrátt fyrir ungan aldur leikið með meistaraflokki Fjölnis undanfarin þrjú tímabil. Hún hóf meistaraflokksferilinn sumarið 2006 er hún lék 13 leiki með liðinu í 1. deildinni og bikar en það sumarið komst liðið í Landsbankadeildina.

Sumarið 2007lék hún svo 19 leiki með liðinu í deild og bikar og skoraði í þeim þrjú mörk og á nýliðinni leiktíð lék hún einnig 19 leiki með liðinu í deild og bikar og skoraði eitt mark.

Hún hefur leikið 10 leiki með yngri landsliðum Íslands og skorað í þeim eitt mark. Hún var valin efnilegasti leikmaður Fjölnis á lokahófi félagsins í haust.

Íris er annar leikmaðurinn sem Stjarnan fær til liðs við sig frá því tímabilinu lauk en eins og við greindum frá fyrr í dag er Hrefna Huld Jóhannesdóttir komin frá KR.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.