04.11.08 - 18:51
Hafliði Breiðfjörð
Björn Orri og Alexander Veigar í Fram (Staðfest)

Björn Orri og Alexander Veigar eru komnir í Fram.

Mynd: Vefsíða Fram

Fram fékk í dag góðan liðsstyrk þegar og Alexander Veigar Þórarinsson kom til félagsins frá Grindavík og Björn Orri Hermannsson frá Fylki. Þetta staðfesti félagið á vefsíðu sinni í kvöld.
Alexander Veigar Þórarinsson er tvítugur leikmaður sem er uppalinn hjá Grindavík. Hann hefur jafnan leikið á miðjunni eða á kanti hjá Grindavík undanfarin ár en hann hóf meistaraflokksferil sinn með félaginu 2005.
Hann hafði leikið örfáa leiki með félaginu undanfarin ár en fékk mun meira tækifæri í sumar þar sem hann vakti athygli fyrir góða frammistöðu. Hann lék í heildina 17 leiki með Grindavík í sumar og skoraði í þeim eitt mark auk þess sem hann lék tvo leiki í bikarnum.
Björn Orri Hermannsson er 19 ára gamall varnar- og miðjumaður sem er uppalinn í Fylki. Hann fékk sitt fyrsta tækifæri í Landbankadeildinni í fyrrasumar er hann lék einn leik og á nýliðnu sumri lék hann fim leiki með liðinu í bakvarðarstöðunni.
Björn Orri hefur leikið 21 leik með unglingalandsliðum Íslands. Hann var í eitt ár, frá 2005-2006 hjá Ipswich á Englandi þar sem hann lék á miðjunni með unglingaliði félagsins.