04.12.08 - 19:50
Hafliði Breiðfjörð
Margrét Þórólfsdóttir í Aftureldingu (Staðfest)

Margrét í búningi Aftureldingar í dag.

Mynd: Tryggvi

Margrét í búningi Aftureldingar í dag.

Mynd: Tryggvi

Margrét Þórólfsdóttir gekk í dag í raðir Aftureldingar/Fjölnis frá uppeldisfélagi sínu, KR.
Margrét sem er tvítugur miðjumaður á að baki 7 leiki með U17 ára landsliði Íslands árin 2005 og 2006.
Hún hefur leikið með Meistaraflokki KR síðan tímabilið 2004 er hún lék einn leik í deild og bikar.
Síðan þá hefur hún leikið 25 leiki fyrir KR í deild og bikar og skorað í þeim þrjú mörk.
Hún er fyrsti leikmaðurinn sem gengur til liðs við Aftureldingu frá því tímabilinu lauk en Guðrún Jóna Kristjánsdóttir sem var aðstoðarþjálfari hjá KR á síðustu leiktíð er þjálfari Aftureldingar/Fjölnis.
Afturelding og Fjölnir tilkynntu í síðustu viku að félögin myndu tefla fram sameiginlegu liði í Landsbankadeild kvenna á næstu leiktíð.