04.12.09 - 11:26
Magnús Már Einarsson
Sigurður Jónsson tekur við Enköping (Staðfest)

Mynd: Guðmundur Svansson

Mynd: Guðmundur Svansson
Sigurður Jónsson hefur verið ráðinn þjálfari hjá Enköping í Svíþjóð en hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið í dag. Sigurður tekur við þjálfun liðsins af Jesper Blomqvist, fyrrum leikmanni Manchester United, en hann var rekinn á dögunum.
Eftir að hafa þjálfað FH, Víking R. og Grindavík á Íslandi þá var Sigurður ráðinn þjálfari Djugarden í Svíþjóð í nóvember 2007.
Hann var hins vegar látinn fara frá Djurgarden í fyrra og í ár var hann í fríi frá þjálfun.
Sigurður mun núna taka við Enköping sem leikur í fjórðu efstu deild í Svíþjóð eftir að hafa fallið úr 2.deildinni í ár. Á heimasíðu Enköping segir Sigurður að leikmannahópurinn sé ekki stór sem stendur.
,,Það eru margir ungir leikmenn í hópnum. Ég hef lent í því sama á Íslandi, þar vorum við með fimm leikmenn á fyrstu æfingu en núna höfum við 12-14,\" sagði Sigurður á heimasíðu Enköping.

Heimild: Heimasíða Enköping