04.12.09 - 14:25
Hafliði Breiðfjörð
Kristinn, Albert og Milos í Víking (Staðfest)

Frá undirskriftinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Albert Ásvaldsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristinn Jóhannes Magnússon.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Milos Miolojevic.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Frá undirskriftinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur tilkynnti í hádeginu um þrjá nýja leikmenn sem eru gengnir í raðir félagsins auk þess sem sjónvarpsmaðurinn góðkunni Hjörvar Hafliðason er kominn í þjálfarateymi liðsins og hefur gert samning um að verða markmannsþjálfari.
Leikmennirnir þrír eru Albert Ásvaldsson sem kemur úr Aftureldingu, Milos Milojevic sem kemur frá Hamar úr Hveragerði og Kristinn Jóhannes Magnússon sem kemur úr KR en hann var á láni hjá Víkingum á síðari hluta síðustu leiktíðar.

Albert Ásvaldsson
Albert Ásvaldsson er fæddur árið 1982. Hann getur leikið á miðju og í vörn. Hann er uppalinn í Fram en hefur leikið með Aftureldingu síðan 2002. Albert skoraði 7 mörk í 21 leik í 1. deildinni síðastliðið sumar.
,,Þetta er flottur klúbbur með góðar aðstæður og á leiðinni upp í úrvalsdeild,\" sagði Albert við Fótbolta.net í dag en Ólafur Ólafsson sem þjálfaði Albert í Aftureldingu undanfarin ár er nýr aðstoðarþjálfari Víkings.
,,Það hafði engin úrslitaáhrif en skipti máli. Hann spurði hvort ég vildi kíkja og ég sló til. Það voru nokkrir aðrir kostir í stöðunni en þetta var vænlegasti kosturinn fannst mér. Það er bara jákvætt að fá samkeppni, maður þarf að leggja sig meira fram og bætir sig.\"
Kristinn Jóhannes Magnússon
Kristinn Jóhannes Magnússon er fæddur 1984 og er miðjumaður sem á að baki 70 meistaraflokksleiki með KR. Hann kom til Víkings sem lánsmaður síðastliðið sumar en hefur nú gengið frá samningi við Víking eftir að félögin komust að samkomulagi um varanleg félagaskipti hans.
,,Ég hafði metnað til að taka annað tímabil með Víkingi. Ég byrjaði hér síðasta sumar hálft sumar og það gekk ekki alveg nógu vel. Ég vildi sanna mig aftur hérna og hjálpa liðinu að komast upp aftur,\" sagði Kristinn við Fótbolta.net eftir undirskriftina.
,,Ég var úti í námi í eitt ár og kom svo seint í júlí. Þetta verður því fyrsta tímabilið í tvö ár sem ég fer í frá upphafi. Það hentaði ekki að vera áfram í KR útaf vinnunni. Ég talaði líka við Gróttu en tók ákvörðun um að vera í Víkingi.\"
Milos Milojevic
Milos Milojevic er fæddur 1982 og getur leikið á miðjunni og sem miðvörður. Hann hefur leikið fyrir Hamar og Ægi á Íslandi en áður hlaut hann sitt fótboltauppeldi hjá Rauðu Stjörnunni í Belgrad. Milos starfar einnig sem þjálfari 4. flokks karla hjá Víkingi.
,,Fyrst þegar ég kom til Íslands var fyrsta liðið sem ég hélt með Víkingur. Kannski útaf því að Sinisa Kekic og Milos Glogovac voru að spila með þeim,\" sagði Milojovic við Fótbolta.net.
,,Ég bý í 200 metra fjarlægð frá Víkingssvæðinu og þjálfa 4. flokki karla hérna. Ég var með nokkur önnur tilboð en fékk svo boð um að æfa með Víkingi og sjá hvernig það færi. Ég spilaði tvo leiki og þeir voru ánægðir með mig svo ég taldi best að semja við Víking og þjálfa og spila á sama stað.\"
,,Ég æfði smá með Breiðablik en fannst betra að taka eitt skref í einu. Ég var að spila í 2. deild í fyrra og það er betra að fara næst í 1. deild. Ég vona að ég verði bara eitt ár þar og spili svo með Víkingi í efstu deild. Ég er eins og heima hjá mér hérna, ég vinn hérna sem þjálfari og er orðinn leikmaður. Ég var einmitt að segja að ég gæti alveg eins leigt herbergi hérna.\"