Fotbolti.net
04.12.19 - 14:00
Magnús Már Einarsson

Rodgers: Stuðningsmenn, ekki fara snemma heim

Rodgers: Stuðningsmenn, ekki fara snemma heim
Canon

Mynd: Getty Images

Brendan Rodgers, stjóri Leicester, hefur kallað eftir því að stuðningsmenn liðsins fari ekki heim af leikjum áður en flautað er til leiksloka.

Kelechi Iheanacho tryggði Leicester sigur á Everton í viðbótartíma á sunnudag en þá voru nokkrir stuðningsmenn farnir úr stúkunni.

<i>„Skilaboð mín eru: Stuðningsmenn, ekki fara snemma heim,"</I> sagði Rodgers. <i>„Þetta er lið sem heldur áfram hvort sem staðan er 9-0 eða 1-1. Það er gott þol í liðinu og gott hugarfar."
„Þetta pirraði mig ekki (að stuðningsmenn fóru fyrr heim) en ég vil hafa þá lengur. Ég veit að það getur verið traffík á leiðinni heim en þetta lið heldur alltaf áfram til leiksloka."

„Stuðningsmennirnir eiga ekki að vera í vafa um að þetta sé búið í stöðunni 1-1. Ég er ekki viss hvort einhver hafi farið heim í stöðunni 9-0 gegn Southampton en ekki fara heim í 1-1. Við höldum áfram til leiksloka."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City6+1118
2Arsenal6+515
3Brighton6+1313
4Brentford6+610
5Everton6+310
6Chelsea6+210
7Leeds6+39
8Hull City6+29
9Liverpool609
10Ipswich Town6-39
11Newcastle6-38
12Crystal Palace6-37
13Man Utd606
14Coventry6-66
15Nott. Forest6-35
16Aston Villa6-55
17Sunderland6-64
18Bournemouth6-63
19Tottenham6-63
20Fulham6-42
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.