Fotbolti.net
05.01.05 - 00:01

Pellegrino til Liverpool (Staðfest)

Pellegrino til Liverpool (Staðfest)
Canon
Mauricio Pellegrino er genginn til liðs við úrvalsdeildarlið Liverpool. Hann er tæknilega séð í láni frá Valencia út leiktímabilið en samningur hans rennur út í sumar. Þessi sterki Argentínumaður er 33 ára og hokinn af reynslu og ætti því að vera góð viðbót fyrir Rafael Benítez.
Benítez fékk hann frá sínu gamla félagi en Pellegrino hefur ekki verið reglulega í byrjunarliðinu á Mestalla undanfarið. Liverpool hafa svo forkaupsrétt á honum þegar samningur hans rennur út.

Hann er því nú aftur kominn í lið með sínum gamla stjóra og þjálfaraliði en Pellegrino sagði að Benítez hefði verið aðalástæðan fyrir því að hann fór til Liverpool: "Mig langaði mikið að prófa það að spila á Englandi og ég er tilbúinn til þess" sagði Pellegrino. "Rafa Benítez var lykillinn að þessu öllu. Hann hringdi í mig og ég ákvað að fara."

Mjög líklegt er að Stephane Henchoz fari frá Liverpool en hann hefur verið í viðræðum við Rangers í Skotlandi. Rangers seldu Jean Alain Boumsong til Newcastle og vantar mann til að fylla í skarðið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.