Fotbolti.net
05.01.05 - 16:13
Hafliði Breiðfjörð

Auðun Helgason til FH (Staðfest)

Auðun skrifar undir samninginn í dag

Auðun skrifar undir samninginn í dag

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Landsliðsmaðurinn Auðun Helgason skrifaði í dag undir þriggja ára samning við Íslandsmeistara FH.  Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi hjá félaginu í hádeginu í dag.  Við spjölluðum við Auðun sem sagðist ætla að einbeita sér að því að halda sæti sínu í íslenska landsliðinu þrátt fyrir að vera kominn heim úr atvinnumennskunni.  Á blaðamannafundinum byrjaði Auðun á að halda smá ræðu vegna komu sinnar til félagsins.

,,Efst í huga er spenna og ánægja með að vera búinn að ganga frá því að koma heim eftir öll þessi ár.  Það eru tíu ár frá því ég spilaði í Krikanum síðast.  Þetta er langur tími og ég er kannski að koma heim sem allt annar leikmaður frá því ég yfirgaf Kaplakrikann síðast."  

,,Maður er búinn að vera lengi í atvinnumennsku og búinn að upplifa eitt og annað sem á eftir að skila sér næsta sumar og sumur.  Ég skrifa hérna undir þriggja ára samning við FH og það er gríðarlegur hugur í þeim.  Hér er ekkert verið að tjalda til einnar nætur. Hér er verið að byggja upp lið hægt og rólega.  Það byrjaði fyrir nokkrum árum og skilaði titli í fyrra.  Það verður haldið áfram næstu árin." 

,,Það er frábært að koma heim vitandi að það eru góðir menn sem standa á bakvið þetta.   Í raun hafa allflestir verið í mörg mörg ár og voru hérna þegar ég steig mín fyrstu skref.  Ég vil þakka þessum mönnum fyrir áhugann og vona að við eigum gott samstarf bæði unnan sem utan vallar á komandi árum."


Hvernig er svo að vera kominn heim á ný?
,,Það er ótrúlega spennandi og skemmtilegt.  Það er búinn að vera smá aðdragandi síðustu daga og vikur.  Eftir að þeir settu sig í samband við mig FH-ingarnir þá fóru hjólin að snúast.  Ég var búinn að ákveða að vera úti áfram í einhver ár en svo heyrði maður í þessum góðu mönnum hérna að það var svo mikill metnaður og kraftur í þeim að ég ákvað að slá til.  Það er alltaf gaman að koma heim og maður vissi það að á endanum kæmi maður heim, hvenær sem það yrði."

Voru mörg lið á eftir þér hér heima?
,,Það var eitthvað af liðum sem settu sig í samband við umboðsmann minn sem er íslenskur.  Það voru þrjú fjögur lið sem vildu fá mig en það urðu engar alvöru viðræður því ég ætlaði mér alltaf að koma í Hafnarfjörðinn ef ég kæmi heim.  En það spurðist út fyrr en ég átti von á að ég kæmi heim og þá fóru þessi lið á fullt og það var svosem gaman af því en innst inni var það FH sem var efst á blaði."

En erlendis frá:
,,Já ég fékk tilboð frá einu dönsku liði og einu norsku liði.  Í ágúst - september buðu Norðmennirnir mér tilboð. Fredriksstad í Noregi sem er í úrvalsdeildinni þar.   Ég var búinn að segja nei við þá í október - nóvember.  Svo komu Danirnir núna.  Danskt lið sem heitir OB sem er í Superliga. Mjög gott lið en ég afþakkaði það um miðjan desember þegar ég ákvað að fara í alvöru viðræður við FH-ingana."

Afhverju valdirðu að fara í FH?
,,Ég fann bara þegar þeir höfðu samband við mig og ég fór að ræða við þá hvað FH hjartað er stórt og mig langaði heim.  Svo spiluðu fjölskylduaðstæður þar stórt hlutverk."

Varnarmenn FH voru að standa sig frábærlega í fyrra, þrír voru í liði ársins og sá fjórði valinn í landslið. Ertu ekkert hræddur um að þú lendir í að sitja á bekknum?
,,Ég hef aldrei hugsað þannig. Ég kom hingað heim til að æfa og spila og berjast fyrir mínu sæti ef þess þarf.  Það verður mikil samkeppni í liðinu sem er af hinu góða og hún verður líka þessi mikla samkeppni í kringum mig.  Það verður mikil pressa á  mér að koma hérna heim eftir öll þessi ár í landsliðinu og atvinnumennsku en maður er búinn að læra að lifa með því og það hentar mér mjög vel."

Ertu alkominn heim eða muntu skoða tilboð erlendis frá komi þau síðar?
,,Maður á aldrei að segja aldrei  en ég er búinn að segja við flesta að ég sé kominn hingað heim til að spila og halda landsliðssæti og komast í byrjunarlið landsliðsins.  Ég er ekkert hættur.  Ég er þrítugur og kem til með að gera allt sem ég get til að standa mig vel og ná titli áfram og jafnvel komast í landsliðið aftur á fulla ferð."

Gerirðu þér áfram vonir um landsliðssæti þó þú sért kominn í íslensku deildina á ný?
,,Ég er búinn að vera viðriðinn landsliðið undanfarin 6-7 ár og það er engin launung að ég ætla að halda mér þar inni áfram með því að spila vel."

Er búið að ákveða hvaða treyjunúmer þú færð?
,,Já ég tek treyju númer 2."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.