05.02.10 - 16:25
Magnús Már Einarsson
John Terry ekki lengur fyrirliði Englendinga (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
John Terry hefur verið sviptur fyrirliðabandinu hjá enska landsliðinu en landsliðsþjálfarinn Fabio Capello staðfesti þetta í yfirlýsingu nú síðdegis.
Terry hefur verið mikið í sviðsljósinu undanfarna daga eftir að enskir fjölmiðlar greindu frá því að hann hafi haldið framhjá með fyrrum kærustu Wayne Bridge.
Terry og Bridge eru liðsfélagar í enska landsliðinu og þeir léku áður saman hjá Chelsea.
Capello fundaði með Terry í dag og sagði honum frá ákvörðun sinni.
,,Eftir mikla umhugsun þá hef ég tekið ákvörðun um að það sé best fyrir mig að taka fyrirliðabandið af John Terry,\" sagði Capello í yfirlýsingunni.
,,Sem fyrirliði liðsins hefur John Terry sýnt af sér góða hegðun. Aftur á móti varð ég að taka annað með inn í reikninginn og hvað er best fyrir enska landsliðshópinn.\"
,,Það sem er best fyrir enska landsliðið hafði áhrif á val mitt. John Terry fékk að vita fyrstur af þessu.\"
,,Þegar að ég valdi John Terry sem fyrirliða þá valdi ég einnig varafyrirliða og þriðja fyrirliða. Það er engin ástæða til að breyta þeirri ákvörðun.\"
,,Ég vil líka nota tækifærið og þakka enska knattspyrnusambandinu og sérstaklega Lord David Triesan og Ian Watmore fyrir að leyfa mér að taka tíma í að taka þessa ákvörðun sem er sú besta fyrir liðið.\"

Heimild: BBC