05.03.10 - 16:29
Hafliði Breiðfjörð
Ása Dögg Aðalsteinsdóttir í Grindavík (Staðfest)

Ása Dögg í markinu hjá GRV í fyrrasumar.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Grindavík gekk í dag frá samningum við markvörðinn Ásu Dögg Aðalsteinsdóttur sem kemur á láni frá Val.
Ása Dögg sem er 21 árs gömul hafði leikið með GRV, sameinuðu liði Grindavíkur, Reynis og Víðis, í Pepsi deildinni á síðasta ári.
Hún lék alla 18 deildarleiki Grindavíkur á síðasta ári auk eins leiks í VISA-bikarnum.
Hún hóf feril sinn með HK/Víkingi en gekk í raðir Vals árið 2006 þar sem hún hefur aðeins leikið 11 leiki í deild og bikar.
Hún á að baki 10 leiki með U19 ára landsliði Íslands og 8 með U17 ára liðinu.