fim 05. mars 2020 15:00
Magnús Már Einarsson
Lee Grant framlengir við Manchester United
Mynd: Man Utd
Markvörðurinn reyndi Lee Grant hefur skrifað undir eins árs framlengingu á samningi sínum við Manchester United.

Hinn 37 ára gamli Grant kom til Manchester United frá Stoke árið 2018 en hefur einungis leikið þrjá leiki síðan þá.

Hann hefur verið þriðji markvörður United á eftir David De Gea og Sergio Romero.

„Ég elska að vera hér og einhverjir aðrir virðast elska það líka svo það er gott að ganga frá þessu," sagði Grant eftir undirskrift.

„Ég hlakka til að vera hluti af þessu á næsta ári og horfa á fótbotafélagið vaxa og fara fram á við. Það hefur klárlega verið þannig undanfarna 18 mánuði."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner