Fernandes í stað Fernandes? - Owen vill Alonso - Chelsea leitar til systurfélagsins - Ítalskur bakvörður til Liverpool? - Arsenal í baráttuna um Gordon
   sun 05. apríl 2026 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Grótta fær unglingalandsliðsmann frá Val (Staðfest)
Mattías Kjeld.
Mattías Kjeld.
Mynd: Grótta
Hinn 16 ára gamli Mattías Kjeld er genginn til liðs við Gróttu en hann gerir tveggja ára samning við félagið.

Mattías er fæddur og uppalinn Valsari og hefur leikið á Hlíðarenda upp yngri flokkana. Hann lék einn leik í Bestu deildinni síðasta sumar og þá hefur hann verið fastamaður í yngri landsliðum Íslands. Mattías er sókndjarfur leikmaður en hann lagði einmitt upp mark í sigri U17 á Portúgal fyrr í vikunni.

„Síðustu árin hafa margir ungir leikmenn sprungið út í meistaraflokksliðum Gróttu. Við höfum fulla trú á að Mattías Kjeld muni láta til sín taka í bláu treyjunni verða einn þessara leikmanna. Hann er áræðinn og teknískur og flinkur í að brjóta leikinn upp framarlega á vellinum. Ég tel að hann verði frábær viðbót við ungt og spennandi Gróttulið," segir Magnús Örn Helgason, yfirmaður fótboltamála hjá Gróttu.

Mattías er ángæður með að vera kominn á Nesið: „Ég er mjög ánægður með að vera búinn að skrifa undir hjá Gróttu. Ég finn fyrir miklum metnaði og krafti hjá félaginu og tel þetta vera rétta skrefið til þess að þróa minn leik. Áfram Grótta!”
Slapp
banner