05.05.09 - 16:14
Magnús Már Einarsson
Evan Schwartz í Breiðablik (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Bandaríski kantmaðurinn Evan Schwartz hefur gengið í raðir Breiðabliks en hann lék með Aftureldingu í annarri deildinni í fyrra.
Síðastliðið haust æfði Evan með Blikum og hann kom síðan til liðsins á reynslu um miðjan síðasta mánuð. Blikar hafa núna ákveðið að fá hann til liðs við sig og hefur Evan fengið félagaskipti frá Aftureldingu.
Evan, sem er 22 ára gamall gekk til liðs við Aftureldingu um miðjan júlí í fyrra og lék með liðinu út tímabilið.
Hann lék alls sjö leiki með liðinu í 2. deildinni og skoraði í þeim þrjú mörk.
Evan sem getur spilað á báðum köntum hafði komið hingað til lands frá Bandríkjunum í fyrra þar sem hann hafði leikið áður.
Hann er eins og fyrr segir kominn með félagaskipti og getur því leikið með Blikum gegn Þrótti í 1.umferð Pepsi-deildarinnar á sunnudag.