Vincent Kompany þjálfari FC Bayern svaraði spurningum á fréttamannafundi fyrir undanúrslitaleik Meistaradeildarinnar.
Bayern tekur á móti ríkjandi Frakklands- og Evrópumeisturum PSG eftir að hafa tapað ótrúlegum fyrri leik á útivelli, þar sem lokatölur urðu 5-4 eftir mikla rússíbanareið.
„Ég hlakka mikið til leiksins en ég myndi ekki segja að ég sé neitt sérlega stressaður. Ég hef ekki átt í erfiðleikum með svefn og hef ekki fundið fyrir pressunni í kringum þennan leik. Ég sinni minni vinnu og næ góðum svefni. Við höfum allir trú á að við getum snúið þessu við. Leikmenn trúa því og stuðningsmennirnir líka," sagði Kompany, sem var svo spurður út í ummæli Mikel Arteta þjálfara Arsenal.
Arteta sagði að það væri ekki hægt að bera PSG og Bayern saman við Arsenal útaf leikjaálagi og gæðum mótherja í deildarkeppni.
03.05.2026 10:20
„Ekki hægt að bera okkur saman við PSG eða Bayern"
„Ég vil ekki tjá mig mikið um þetta en ég þekki þetta vel eftir að hafa spilað í úrvalsdeildinni til margra ára. Ég held ekki að þessi ummæli séu látin falla til að gagnrýna Bayern eða PSG, þetta sem hann talar um er raunverulegt vandamál á Englandi.
„Í enska boltanum eru 38 leikir á deildartímabilinu, tvær bikarkeppnir og ekkert vetrarfrí. Það er ekki undir mér komið að ræða um þetta en þessi ummæli eiga rétt á sér. Jürgen Klopp talaði oft um þetta þegar hann var hjá Liverpool."




