Real Madrid ræðir við Mourinho - Chelsea og Newcastle vilja Nunez - Joao Gomes til Atlético?
   þri 05. maí 2026 20:40
Ívan Guðjón Baldursson
Marotta: Einn af efnilegustu þjálfurum heims
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Giuseppe 'Beppe' Marotta, forseti Inter, er mjög ánægður með Cristian Chivu eftir fyrsta tímabilið hans við stjórnvölinn.

Inter vann ítölsku deildina þægilega og er komið í úrslitaleik bikarsins en lenti í vonbrigðum í Meistaradeildinni þar sem liðið var afar óvænt slegið út af norsku risabönunum í Bodö/Glimt.

„Hann getur og verður að vera við stjórnvölinn hjá Inter næstu árin, hann býr yfir frábærum eiginleikum. Ég tel hann vera rétta þjálfarann til að leiða félagið áfram... kannski verð ég farinn frá Inter á undan honum!" sagði Marotta, sem réði Chivu sem arftaka fyrir Simone Inzaghi síðasta sumar.

„Það var hugrakkt að ráða hann í starfið en við hugsuðum okkur vel og lengi um. Okkur leið eins og hann væri með fullkomna eiginleika til að stýra liðinu eftir að hafa spilað fyrir Inter sem leikmaður, við höfðum engar efasemdir um hæfileika hans. Eina neikvæða var reynsluleysið hans."

Chivu stýrði unglingaliðum Inter frá 2018 til 2024 áður en hann tók við hjá Parma í febrúar 2025 og bjargaði liðinu frá falli úr Serie A.

„Ég er hissa að sjá hvað fólk er hissa yfir því hversu góður þjálfari Chivu er. Við sýndum hugrekki með að fara gegn því sem fjölmiðlar og fótboltasérfræðingar sögðu.

„Hann á bara eftir að verða betri þjálfari með reynslunni sem er að öðlast. Ég tel hann vera einn af efnilegustu þjálfurum fótboltaheimsins í dag."


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 35 26 4 5 82 31 +51 82
2 Napoli 35 21 7 7 52 33 +19 70
3 Milan 35 19 10 6 48 29 +19 67
4 Juventus 35 18 11 6 58 30 +28 65
5 Roma 35 20 4 11 52 29 +23 64
6 Como 35 17 11 7 59 28 +31 62
7 Atalanta 35 14 13 8 47 32 +15 55
8 Lazio 35 13 12 10 39 34 +5 51
9 Udinese 36 14 8 14 45 46 -1 50
10 Bologna 35 14 7 14 42 41 +1 49
11 Sassuolo 36 14 7 15 44 46 -2 49
12 Torino 36 12 8 16 41 59 -18 44
13 Parma 35 10 12 13 25 42 -17 42
14 Genoa 35 10 10 15 40 48 -8 40
15 Fiorentina 35 8 13 14 38 49 -11 37
16 Cagliari 36 9 10 17 36 51 -15 37
17 Lecce 35 8 8 19 24 47 -23 32
18 Cremonese 35 6 10 19 27 53 -26 28
19 Verona 35 3 11 21 24 57 -33 20
20 Pisa 35 2 12 21 25 63 -38 18
Slapp
banner
banner
banner