Fotbolti.net
05.06.20 - 09:30
Magnús Már Einarsson

Grýttu rútu Benfica - Tveir á sjúkrahús

Grýttu rútu Benfica - Tveir á sjúkrahús
Canon

Mynd: Getty Images

Tveir leikmenn Benfica voru fluttir á sjúkahús í gærkvöldi eftir að stuðningsmenn liðsins grýttu rútu liðsins eftir markalaust jafntefli gegn Tondela á heimavelli í gær.

Benfica er ennþá á toppnum í Portúgal, með jafnmörg stig og Porto.

Stuðningsmenn liðsins voru hins vegar brjálaðir eftir jafnteflið í gær og grýttu steinum í rútu liðsins.

Þýski miðjumaðurinn Julian Weigl og serbneski kantmaðurinn Andrija Zivkovic þurftu báðir að fara á sjúkrahús eftir atvikið.
Benfica reynir nú ásamt yfirvöldum að finna sökudólgana sem grýttu steinunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.