Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fös 05. júní 2020 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Ísland um helgina - Mjólkurbikarinn og Meistarar meistaranna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er vel hægt að gleðjast um helgina en nú er æfingaleikjasyrpunni að ljúka og er spilað í Mjólkurbikar karla- og kvenna. Veislan hefst í kvöld.

Selfoss og Snæfell spila á JÁVERK-vellinum á Selfossi klukkan 19:15 en á sama tíma spilar ÍR við KÁ. Þá verður fróðlegt að fylgjast með leik Smára og Njarðvíkur í Fagralundi klukkan 20:00 en þar verða margir öflugir reynsluboltar í liði Smára. Þá er Mikael Nikulásson búinn að smíða öflugan hóp hjá Njarðvíkingum.

Á laugardaginn er spilað um bikar. Kvennalið Vals mætir Selfyssingum í Meistarar meistaranna en þar mætast Íslands- og bikarmeistararnir frá síðasta tímabili í hörkuleik klukkan 16:00 á Origo-vellinum.

Bikarinn hjá körlunum verður einnig í sviðsljósinu en Fram og Álftanes mætast. Afturelding spilar við Vatnaliljurnar og Þróttur R. leikur við Álafoss.

Á sunnudaginn mætast svo KR og Víkingur R. í Meistarar meistaranna og er því vel við hæfi að leikurinn far fram á Meistaravöllum. Leikurinn hefst klukkan 19:15.

Mjólkurbikar kvenna hefst þá á sunnudeginum og má sjá fjölmarga öfluga leiki en einnig er spilað á mánudeginum.

Leikir helgarinnar:

Föstudagur 5. júní

Mjólkurbikar karla
19:15 Selfoss-Snæfell (JÁVERK-völlurinn)
19:15 ÍR-KÁ (Hertz völlurinn)
20:00 Smári-Njarðvík (Fagrilundur - gervigras)

laugardagur 6. júní

Meistarar meistaranna konur
16:00 Valur-Selfoss (Origo völlurinn)

Mjólkurbikar karla
13:00 KV-Kári (KR-völlur)
13:00 Vængir Júpiters-KH (Fjölnisvöllur - Gervigras)
13:00 Hvíti riddarinn-KFS (Varmárvöllur)
13:00 Haukar-Elliði (Ásvellir)
14:00 Dalvík/Reynir-KF (Dalvíkurvöllur)
14:00 Hörður Í.-Vestri (Olísvöllurinn)
14:00 Skallagrímur-Ýmir (Skallagrímsvöllur)
14:00 Þróttur V.-Ægir (Vogaídýfuvöllur)
14:00 Kría-Hamar (Vivaldivöllurinn)
14:00 Höttur/Huginn-Sindri (Fellavöllur)
14:00 Mídas-KM (Víkingsvöllur)
14:00 Vatnaliljur-Afturelding (Fagrilundur - gervigras)
14:00 Álftanes-Fram (Bessastaðavöllur)
16:00 KFG-KB (Samsung völlurinn)
18:00 Þróttur R.-Álafoss (Eimskipsvöllurinn)

sunnudagur 7. júní

Meistarar meistaranna karlar
19:15 KR-Víkingur R. (Meistaravellir)

Mjólkurbikar karla
14:00 Ísbjörninn-Björninn (Kórinn - Gervigras)
14:00 Tindastóll-Kormákur/Hvöt (Sauðárkróksvöllur)
14:00 KFB-Víðir (Bessastaðavöllur)
14:00 ÍH-Berserkir (Skessan)
14:00 Samherjar-Nökkvi (Hrafnagilsvöllur)
14:00 KFR-GG (SS-völlurinn)
14:00 SR-Uppsveitir (Eimskipsvöllurinn)
16:00 Stokkseyri-Afríka (Stokkseyrarvöllur)
17:00 Árborg-Augnablik (JÁVERK-völlurinn)
19:00 Léttir-Reynir S. (Hertz völlurinn)

Mjólkurbikar kvenna
13:00 ÍR-Álftanes (Hertz völlurinn)
14:00 Hamar-ÍA (Grýluvöllur)
16:00 Fjarðab/Höttur/Leiknir-Hamrarnir (Fjarðabyggðarhöllin)

mánudagur 8. júní

Mjólkurbikar kvenna
19:15 Afturelding-HK (Fagverksvöllurinn Varmá)
19:15 Fjölnir-Augnablik (Extra völlurinn)
19:15 Grótta-Víkingur R. (Vivaldivöllurinn)
20:00 Fram-Grindavík (Framvöllur)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner