Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 05. júlí 2022 18:10
Brynjar Ingi Erluson
Ajax að ganga frá kaupum á Bergwijn
Steven Bergwijn
Steven Bergwijn
Mynd: Getty Images
Hollenska meistaraliðið Ajax er að ganga frá kaupum á Steven Bergwijn frá Tottenham Hotspur.

Bergwijn er 25 ára gamall og kom til Tottenham frá PSV Eindhoven fyrir tveimur árum.

Leikmaðurinn náði aldrei að festa sæti sitt í byrjunarliðinu og eftir að Antonio Conte tók við varð ljóst að hann ætti ekki framtíð hjá félaginu.

Ajax reyndi að kaupa Bergwijn frá Tottenham í janúar en enska félagið hafnaði öllum tilboðum.

Hollenska félagið ákvað að slá aftur á þráðinn fyrir nokkrum vikum og hafa félögin nú komist að samkomulagi um kaupverð en Ajax greiðir 30 milljónir evra fyrir leikmanninn.

Bergwijn er búinn að semja um kaup og kjör við Ajax og á aðeins eftir að ganga frá smáatriðum en Fabrizio Romano segir frá þessu á Twitter í dag.

Stuðningsmenn Tottenham eiga eina frábæra minningu af Bergwijn en það var þegar hann kom inná sem varamaður gegn Leicester á síðustu leiktíð og skoraði tvö mörk seint í uppbótartíma og tryggði mikilvæg þrjú stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner