Fotbolti.net
05.08.10 - 11:05
Magnús Már Einarsson

Hörður Magnússon og Tinna Óðinsdóttir til Levanger (Staðfest)

Hörður Magnússon.

Hörður Magnússon.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hörður Magnússon, leikmaður HK, og unnusta hans, Tinna Óðinsdóttir, leikmaður HK/Víkings, eru á leið til norska knattspyrnufélagsins Levanger en þetta kemur fram á vef HK.
Hörður er þegar kominn til Noregs og byrjaður að æfa með karlaliði félagsins og Tinna fer utan næsta mánudag, eftir að hafa spilað næstsíðasta leik HK/Víkings í 1. deildinni í sumar.

Rúnar Páll Sigmundsson, fyrrum þjálfari HK, er þjálfari karlaliðs Levanger sem leikur í 2. deild.

Það er í 7. sæti af 14 liðum í einum af fjórum riðlum 2. deildar og hefur staðið sig betur í ár en undanfarin ár þar sem það var yfirleitt í fallbaráttu deildarinnar. Kvennalið félagsins spilar líka í 2. deild og er þar neðarlega í sínum riðli.

Hörður missti af síðustu leikjum HK áður en hann fór til Noregs vegna meiðsla en hann er núna allur að koma til.

Hann og Tinna ætla bæði að stunda nám í Noregi en þau hafa bæði leikið með HK og HK/Víkingi allan sinn feril.

Heimild: Heimasíða HK

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.