Fotbolti.net
05.08.10 - 21:05
Jóhann Ingi Jónsson

Keflvíkingar skoruðu tvö undir lokin og stálu þremur stigum í Árbænum

Kjartan Ágúst Breiðdal skoraði eina mark Fylkis í fyrri viðureign liðanna

Kjartan Ágúst Breiðdal skoraði eina mark Fylkis í fyrri viðureign liðanna

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Fylkir 1 - 2 Keflavík
1-0 Albert Brynjar Ingason - víti (\'21)
1-1 Guðmundur Steinarsson - víti (\'82)
1-2 Jóhann Birnir Guðmundsson (\'86)
Leik lokið: Þá er búið að flauta leikinn af. Keflvíkingar fara með þrjú stig úr Árbænum! Frekari umfjöllum og viðtöl koma inn á síðuna síðar í kvöld.

86. mín: MAAAARK!!! Jóhann Birnir skorar annað mark Keflvíkinga eftir laglega sendingu frá Guðmundi Steinarssyni!!! Hvað er að frétta hérna í Árbænum? Nú hafa Fylkismenn 5 mínútur og uppbótartíma til þess að jafna leikinn og fá stig úr leiknum!

84. mín: Fylkismenn virka ekki sáttir og eru harðir í horn að taka. Um þennan vítaspyrnudóm verður rætt um í kvöld og rúmlega það. Það er ég viss um.

82. mín: MARK! Guðmundur Steinars hamrar boltann í netið og áhorfendur Fylkis eru síður en svo sáttir með dómara leiksins.

81. mín: VÍTI OG RAUTT!!! Þórir Hannesson fær dæmt á sig víti eftir viðskipti við Magnús Þóri Matthíasson. Þórir fær sitt annað gula spjald og því rautt! Guðmundur Steinarsson stillir boltanum upp.

80. mín: Þórir Hannesson er hér hársbreidd frá því að skora sjálfsmark eftir að hafa \'kiksað\' boltann yfir Fjalar í markinu. Boltinn lak löturhægt framhjá markinu og Keflvíkingar fá horn.

77. mín: Fylkismenn halda áfram að ógna. Nú slapp Albert Brynjar inn fyrir en skot hans fór rétt yfir samskeitin.

76. mín: Keflvíkingar fá aukaspyrnu við hlið vítateigsins. Jóhann Birnir á hættulega fyrirgjöf sem Fjalar kýlir frá. Fylkismenn geysast upp í skyndisókn þar sem Jóhann Þórhalls er kominn í ákjósanlegt færi en vippaði hann boltanum framhjá.

75. mín: Áhorfendur hér í kvöld eru 856.

74. mín: Bjargað á línu!!! Valur Fannar Gíslason á skot af stuttu færi eftir hornspyrnu en Magnús Þórir Matthíasson bjargar á línunni! Stuttu áður kom Jóhann Þórhallsson inn fyrir Ingimund Níels Óskarsson

66. mín: Hér er mark dæmt af heimamönnum en fátt markvert hefur gerst undanfarnar mínútur. Ásgeir Börkur gaf boltann inn fyrir á Albert Brynjar í skyndisókn Fylkis og kláraði Albert færið vel en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Spurning hvort að um réttan dóm hafi verið að ræða.

58. mín: Keflvíkingar fá aðra aukaspyrnu rúmum 5 metrum fyrir utan teig. Guðmundur Steinarsson rúllaði boltanum út á Harald Frey sem átti algjörlega misheppnað skot og hættan liðin.

52. mín: Andri Þór Jónsson kemur af velli haltrandi og inn fyrir hann kemur Ásgeir Örn Arnþórsson.

49. mín: Guðmundur Steinarsson minnir á sig með góðri aukaspyrnu sem Fjalar þarf að hafa sig allan við til þess að ná til knattarins. Endar hann svo fyrir aftan endamörk.

46. mín: Leikurinn er hafinn að nýju. Það tók Andra Þór Jónsson og Magnús Þóri Matthíasson um það bil fjórar og hálfa sekúndu að rekast saman og þurfa þeir báðir aðhlynningu.

45. mín: Hálfleikur Nú hefur verið flautað til hálfleiks. Spenntir lesendur eru hvattir til þess að rífa sig upp frá tölvunum og nota hléð til þess að næla sér í veitingar einsog undirritaður ætlar sér að gera. Um að gera...

43. mín: Nú sækja Fylkismenn hratt og skapa hættu eftir fyrirgjöf Tómasar Þorsteinssonar. Boltinn barst beint til Andrésar sem átti skalla rétt framhjá. Hættulegt færi en staðan er enn 1-0.

40. mín: Keflvíkingar halda áfram að skapa hættu eftir hornspyrnu og aftur er það Bjarni Hólm sem vinnur skallaeinvígi en nú fer boltinn beint yfir markið.

36. mín: Og enn sækja Keflvíkingar, nú á Jóhann Birnir fast skot framhjá marki Fylkis en hann stóð á vítateigslínunni.

35. mín: Snjallt spil á hægri kanti Keflvíkinga og fyrirgjöfin beint á kollinn á Magnúsi Þóri Matthíassyni sem sneiðir boltann framhjá fjærstönginni.

34. mín: Eftir dágóðan darraðadans á hliðarlínunni framkvæma Keflvíkingar sína arða skiptingu og inn fyrir Guðjón kemur Paul McShane.

29. mín:Guðjón Árni Antoníusson lendir í hnjaski á miðjunni og liggur blóðugur á enninu eftir. Töf er á leiknum en vonandi rís hann á fætur og getur klárað leikinn.

26. mín: Keflvíkingar aftur nálægt því að skora eftir hornspyrnu og nú er það Bjarni Hólm sem fékk frían skalla á fjærstöng stutt frá markinu. Boltinn fór hins vegar í varnarmann og aftur fyrir endamörk.

24. mín: Lasse hér ekki langt frá rauða spjaldinu! Pape fær boltann ofarlega á vinstri kantinum og Lasse kallinn kominn veeeeel út úr markinu og tekur Pape niður! Hlýtur hann gult spjald að launum frá Jóhannesi dómara leiksins.

21. mín: MARK!!! Albert Brynjar smyr boltann í samskeitin!!! 1-0 fyrir heimamenn. Lasse greyið átti lítinn séns í þennan bolta!!!

19. mín:VÍTI!!! Bjarni Hólm handleikur boltann eftir viðskipti við Andrés Má!!! Albert Brynjar Ingason fer á punktinn og Ómar Jóhannsson fer útaf óvænt í markinu!!! Lasse Jörgensen kemur inn á fyrir vítið. Stórtíðindi hér í Árbænum.

11. mín: Fylkismenn með aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi Keflvíkinga og boltanum er spyrnt inn í mikinn \'pakka\' í teignum. Boltinn berst til Pape Faye sem tekur gott fast skot að marki en hann fer í varnarmann og yfir. Við fáum mark fyrir hálfleik ef þetta heldur svona áfram (staðfest).

7. mín: Haraldur Freyr með skalla að marki Fylkis eftir hornspyrnu en Fjalar ver frábærlega og knettinum er komið frá hættusvæði. Bæði lið byrja kröftuglega.

3. mín: Fylkismenn hársbreidd frá því að skora! Gott spil þeirra út á vinstri kantinn og góð fyrirgjöf valda usla fyrir framan markið. Ómar kom út úr markinu og missti boltann framhjá sér og Albert Brynjar Ingason fékk boltann fyrir sig fyrir opnu marki en átti laust skot sem Haraldur Freyr Guðmundsson náði að verja með hetjulegri tæklingu!

1. mín: Þá er leikurinn hafinn. Fylkismenn hefja leikinn með boltann og leika gegn lítilli golu. Aðstæður eru ágætar, skýjað en þurrt, örlítill vindur.

19:11 Jóhannes Valgeirsson dómari leiksins og aðstoðarmenn hans leiða nú leikmenn á eftir sér inn á völlinn og nú styttist í upphafsspyrnu leiksins.

18:58 Þá hafa byrjunarliðin verið staðfest.

Fylkir:
Fjalar Þorgeirsson (M), Kristján Valdimarsson, Ásgeir Börkur Ásgeirsson, Valur Fannar Gíslason (F), Þórir Hannesson, Ingimundur Níels Óskarsson, Andrés Már Jóhannsson, Pape Mamadou Faye, Albert Brynjar Ingason, Tómas Þorsteinsson, Andri Þór Jónsson.

Keflavík:
Ómar Jóhannsson, Alen Sutej, Guðjón Árni Antoníusson, Haraldur Freyr Guðmundsson, Einar Orri Einarsson, Jóhann Birnir Guðmundsson, Guðmundur Steinarsson, Magnús Sverrir Þorsteinsson, Magnús Þórir Matthíasson, Bjarni Hólm Aðalsteinsson, Hólmar Örn Rúnarsson.

18:30 Hér verður textalýsing frá viðureign Fylkis og Keflavíkur sem fer fram í Árbænum í kvöld. Leikurinn er í 14. umferð Pepsi-deildar karla og hefst hann kl. 19.15.

Fylkismenn sitja í 9. sæti deildarinnar með 15 stig en Keflvíkingar hafa safnað saman 20 stigum og eru í 4.-5. sæti.

Dómari leiksins verður Jóhannes Valgeirsson, aðstoðardómarar þeir Einar Sigurðsson og Sverrir Gunnar Pálmason en eftirlitsmaður KSÍ er Björn Guðbjörnsson.

Liðin hafa spilað alls 25 leiki í efstu deild karla frá árinu 1989. Nokkuð jafnræði er á liðunum en þó hafa Keflvíkingar aðeins betur, þeir hafa sigrað 10 viðureignanna, Fylkir 7 og 8 leikir hafa endað með jafntefli.

Í 4. umferðinni nú í sumar fóru leikar 2-1 Keflvíkingum í vil í Njarðvík þar sem Keflvíkingar spiluðu fyrstu heimaleiki sína þar sem leikvöllur þeirra var ekki tilbúinn.
Magnús Þorsteinsson og Guðmundur Steinarsson skoruðu mörk Keflvíkinga en það var Kjartan Ágúst Breiðdal sem skoraði mark Fylkis.
Keflvíkingar skoruðu tvö undir lokin og stálu þremur stigum í Árbænum
Canon

Mynd: Fotbolti.net - Davíð Örn Óskarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.