Íslenska U21-landsliðið er að hefja nýja undankeppni fyrir EM með tveimur heimaleikjum; gegn Lúxemborg klukkan 17 á morgun föstudag og svo gegn Armeníu á mánudag. Báðir leikir verða á Víkingsvelli
Kolbeinn Birgir Finnsson spjallaði við Fótbolta.net fyrir æfingu í dag en hann gekk í raðir Borussia Dortmund í sumar. Þar er hann hjá varaliði félagsins.
„Fyrstu vikurnar hafa verið mjög ánægjulegar, það eru búnir tveir leikir og ég hef spilað þá báða. Ég er að koma mér inn í þetta hægt og rólega. Ég átti stoðsendingu úr horni í fyrsta leik, það var gaman," segir Kolbeinn.
„Þetta er eins og maður ímyndaði sér. Það er allt til alls og rosa flott allt saman. Það er gaman að prófa það að vera í svona stórum klúbbi. Það er allt til að bæta sig sem fótboltamaður og gott svið til að sýna sig:"
Viðtalið við Kolbein má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan en þar ræðir hann um komandi U21-landsleiki og Fylki.
Athugasemdir