05.11.08 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Diego Maradona tekinn við Argentínu (Staðfest)

Diego Maradona ásamt Julio Grondona í gær.

Mynd: Getty Images

Í gærkvöld var það endanlega staðfest að Diego Maradona er orðinn landsliðsþjálfari Argentínu og tekur þar með liðinu sem hann varð Heimsmeistari með árið 1986. Maradona er 48 ára gamall og hans fyrsti leikur við stjórnvölinn verður gegn Skotlandi 19. nóvember í Glasgow.
,,Þetta er heiður,\" sagði Maradona í gær. ,,Ég mun leggja allt mitt í þetta og sjá til þess að allt fari vel. Við erum að vinna daglega í því að Argentína eignist landslið sem verður betra og betra.\"
Þó Maradona sé í guðatölu í landinu hefur ráðning hans vakið upp spurningar fjölmiðla í heimalandinu og stuðningsmanna allt frá því tilkynnt var um hana í síðustu viku. Margir efast um að hann geti komið hæfileikum sínum sem leikmanns til annarra er hann er í þjálfarahlutverkinu og muna vel eftir vandamálum hans með eiturlyf og fleira.
Julio Grondona forseti argentíska knattspyrnusambandsins kynnti Maradona opinberlega í gær sem nýjan þjálfara en Maradona tekur við starfinu af Alfio Basile sem hætti 16. október, degi eftir 1-0 tap gegn Chile í undankeppni HM 2010.

Heimild: AP