05.11.08 - 14:06
Magnús Már Einarsson
Þorvaldur Sveinn Guðbjörnsson aftur í KA (Staðfest)

Þorvaldur Sveinn í leik með KS/Leiftri í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Þorvaldur Sveinn Guðbjörnsson hefur gengið að nýju í raðir KA eftir að hafa leikið með KS/Leiftri á síðustu leiktíð.
Þorvaldur Sveinn, sem er þrítugur varnarmaður, hefur skrifað undir tveggja ára samning við KA.
,,KA-menn eru ánægðir að endurheimta Þorvald enda öflugur varnarmaður á ferðinni,\" segir á heimasíðu KA.
Þorvaldur yfirgaf KA fyrir ári síðan og fór á heimaslóðir og lék með KS/Leiftri í fyrstu deildinni í sumar.
Þar lék hann alla 22 leiki KS/Leifturs í deildinni og skoraði eitt mark en áður hafði hann leikið með KA frá 2003-2007.

Heimild: Heimasíða KA