05.11.08 - 14:28
Magnús Már Einarsson
Skúli Jónsson í Þrótt (Staðfest)

Skúli í leik með Þrótti sumarið 2007.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Skúli Jónsson ungur framherji úr KR er genginn til liðs við Þrótt Reykjavík.
Skúli, sem er tvítugur, þekkir til hjá Þrótti því hann lék með liðinu í fyrstu deildinni sumarið 2007.
Þá var Skúli í láni frá KR og skoraði eitt mark í níu leikjum í fyrstu deildinni þegar að Þróttur komst upp um deild.
Í sumar var Skúli framan af í herbúðum KR en hann fékk fá tækifæri og kom einungis við sögu í einum leik í VISA-bikarnum.
Í kjölfarið var Skúli síðan lánaður til Víkings R. þar sem hann skoraði þrjú mörk í sjö leikjum undir lok tímabilsins eftir að hafa komið á láni í júlí.