05.12.09 - 17:10
Þórður Már Sigfússon
Ólafur Ingi Skúlason til SønderjyskE (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Landsliðsmaðurinn Ólafur Ingi Skúlason hefur skrifað undir þriggja ára samning við danska úrvalsdeildarliðið SønderjyskE. Frá þessu er greint á heimasíðu félagsins.
,,Við erum mjög stolt yfir því að Ólafur skuli hafa valið SönderjyskE framyfir önnur lið,“ sagði Jacob Gaxe Gregersen, yfirmaður íþróttamála hjá SønderjyskE.
,,Ég er þess fullviss að við höfum gert kjarakaup og ég hlakka virkilega til að fylgjast með honum í þeim mikilvægu leikjum sem við eigum eftir fram til vorsins.“
Ólafur Ingi ákvað fyrir stuttu að yfirgefa herbúðir sænska liðsins Helsingborg þegar samningur hans við félagið rann út og voru mörg lið sem höfðu áhuga á að krækja í hann, þar á meðal fleiri dönsk úrvalsdeildarlið.

Heimild: Heimasíða SønderjyskE