Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 05. desember 2019 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ísland í dag - Valur og KR mætast í úrslitaleik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur tekur á móti KR í úrslitaleik Bose mótsins í dag. Leikurinn fer af stað klukkan 17:30 og verður spilað á Origo vellinum á Hlíðarenda.

Íslandsmeistarar KR rúlluðu upp riðlinum sínum og lögðu FH, Víking R. og Gróttu að velli til að enda með 9 stig.

Valur endaði með 7 stig eftir 2-0 sigur gegn KA í lokaumferðinni. Valsarar lögðu Stjörnuna einnig að velli en gerðu jafntefli við Breiðablik.

Úrslitaleikurinn verður gríðarlega spennandi enda tvö lið að mætast sem hafa unnið Pepsi Max-deildina með yfirburðum síðustu tvö ár.

Leikur dagsins:
17:30 Valur - KR (Origo völlurinn)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner