Fotbolti.net
06.01.05 - 16:50

Nelsen til Blackburn (Staðfest)

Blackburn liðið að styrkja sig

Blackburn liðið að styrkja sig

Canon
Blackburn Rovers hafa fengið Ryan Nelsen, fyrirliða landsliðs Nýja-Sjálands til sín á frjálsri sölu. Hann kemur frá DC United í Bandaríkjunum og skrifaði undir 18 mánaða samning á Ewood Park.
Nelsen er 27 ára gamall miðvörður og eftir reynslutíma leist Mark Hughes mjög vel á hann og í kjölfarið skrifaði hann undir. Nelsen er með sérstakt vegabréf sem gerir honum kleyft að vinna í Englandi í tvö ár og því var samningurinn ekki lengri en ella.

Hughes er greinilega hrifinn af því að kaupa fyrirliða landsliða því hann festi einnig kaup á fyrirliða Suður-Afríku, Aaron Mokoena í vikunni!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.