06.02.10 - 12:07
Hafliði Breiðfjörð
Ingvar Ólason í Þrótt (Staðfest)

Ingvar Ólason ásamt Unnari Steini Ingvarssyni syni sínum eftir undirskriftina í morgun.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ingvar Ólason er genginn í raðir Þróttar eftir tíu ára fjarveru en hann skrifaði undir eins árs samning við félagið nú í morgun.
Ingvar hóf knattspyrnuferil sinn í 6. flokki Þróttar og lék með öllum yngri flokkum félagsins og upp í meistaraflokk.
Hann fékk sitt fyrsta tækifæri með meistaraflokki sumarið 1991 og lék þar til ársins 1999 er hann fór til Fram.
Hann var hjá Fram síðustu tíu leiktíðir en snýr nú aftur á heimaslóðir þar sem hann skrifaði undir eins árs samning við félagið í morgun.
Hjá Þrótti verður Ingvar ekki bara leikmaður því hann verður aðstoðarþjálfari Páls Einarssonar sem tók við þjálfun liðsins í haust.
Rætt verður við Ingvar og Finnboga Hilmarsson formann knattspyrnudeildar Þróttar hér á Fótbolta.net síðar í dag.