06.03.10 - 19:31
Magnús Már Einarsson
Martin Pedersen í Val (Staðfest)
Annar erlendur leikmaður á reynslu

Gunnlaugur Jónsson og Martin Pedersen.

Mynd: Valur

Pedersen fagnar marki sem Álaborg skoraði gegn Tottenham í Evrópukeppni félagsliða árið 2007.

Mynd: Getty Images

Gunnlaugur Jónsson og Martin Pedersen.

Mynd: Valur
Valur hefur fengið danska vinstri bakvörðinn Martin Pedersen á láni frá Vejle. Pedersen lék með Val í 2-1 sigri á Völsungi í æfingaleik í dag og í kjölfarið var gengið frá lánssamningi út tímabilið.
Pedersen er 26 ára gamall en hann hefur leikið lengi í dönsku úrvalsdeildinni. Alls hefur Pedersen leikið yfir 150 leiki í dönsku úrvalsdeildinni en hann var áður í danska U21 árs landsliðinu.
Gunnlaugur Jónsson þjálfari Vals sagði við Fótbolta.net í kvöld að Pedersen sé hugsaður sem vinstri bakvörður en hann getur einnig leikið í miðverði og lék þar í síðari hálfleiknum í dag.
Pedersen lék með AaB Álaborg frá 2002-2008 og spilaði meðal annars með liðinu í Meistaradeildinni árið 2008 gegn liðum eins og Manchester United og Villareal. Í fyrra gekk Pedersen til liðs við Vejle en hann hefur einnig leikið með Sönderjyske á láni á ferli sínum.
Pedersen kemur til Vals í gegnum umboðsskrifstofuna Sportic en hann mun núna fara til Danmerkur í tíu daga áður en að hann kemur aftur til Íslands.
,,Ástæðan fyrir því að ég vill spila með Val er að ég vil spila með toppliði á Íslandi,\" sagði Pedersen við Fótbolta.net í kvöld.
Við komu Pedersen er ljóst að Valsmenn munu ekki semja við Steinarr Guðmundsson, fyrrum varnarmann Leiknis, en hann hefur æft með Val að undanförnu þar sem að liðið var í leit að manni til að fylla skarðið sem Bjarni Ólafur Eiríksson skyldi eftir sig þegar að hann fór til Stabæk á dögunum.
Annar erlendur varnarmaður lék með Val í æfingaleiknum í dag en sá er hægri bakvörður. Gunnlaugur ætlar að skoða þann leikmann betur á næstu dögum.
,,Ég ætla að fá að halda honum aðeins lengur. Mér leist vel á hann í leiknum og við ætlum að fá að skoða hann aðeins betur,” sagði Gunnlaugur Jónsson þjálfari Vals við Fótbolta.net í kvöld.