06.03.12 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Berglind hætt í Þór/KA og farinn til Danmerkur (Staðfest)

Berglind Magnúsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Berglind Magnúsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Markvörðurinn Berglind Magnúsdóttir, sem hefur varð mark Þór/KA undanfarin ár er hætt með liðinu en hún mun leika í sumar með danska liðinu 1. deildarliðinu ASA fodbold klub sem er staðsett í hjarta Aarhus. Berglind flutti í lok síðasta sumar til Danmerkur og hefur verið að æfa undanfarið með danska liðinu. Þetta kemur fram á vef Þórs í gær.
Berglind hóf að leika með Þór/KA í Pepsí-deildinni 2008 og var aðal markvörður liðsins allar götur þar til hún flutti til Danmerkur í lok sumars. Berglind á 60 leiki að baki með liðinu í deild og bikar auk leikja í Lengjubikarnum. Og á þeim tíma sem hún lék með Þór/KA sýndi svo ekki verður um villst að hún var og er ein af bestu markvörðum landsins.
Berglind sagði í stuttu spjalli við vef Þórs að hún hafi tekið sér tíma í haust til að hugleiða framtíð sína í boltanum og jafnvel hugleitt að hætta.
,,En þegar mér varð hugsað til þeirra frábæru stunda með sem ég hef átt með Þór/KA þá varð mér ljóst að þannig stund vil ég upplifa aftur,\" sagði hún á vef Þórs þar sem nánar er rætt við hana.

Heimild: Vefur Þórs