Fotbolti.net
06.03.12 - 20:39
Magnús Már Einarsson

Alfreð Finnbogason til Helsingborg (Staðfest)

Alfreð Finnbogason.

Alfreð Finnbogason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Alfreð Finnbogason, framherji Lokeren, hefur gengið til liðs við sænsku meistarana í Helsingborg á láni en samningurinn gildir til 15. ágúst.
,,Ég næ stórum hluta tímabilsins í Svíþjóð og 2 og 3. umferð í Meistaradeildinni. Það er mjög gaman að taka þátt í því fyrir mig,\" sagði Alfreð við Fótbolta.net í kvöld eftir að gengið var frá samningum.

Alfreð hefur ekki fengið mörg tækifæri með Lokeren í vetur en hann var þó í byrjunarliðinu um helgina þegar hann skoraði í 4-0 sigri á Westerlo. Alfreð var hins vegar ákveðinn í að hoppa á tækifærið að fara til Helsingborg.

,,Þeir hafa sýnt mjög mikinn áhuga og mér langaði frekar að eyða sumrinu að spila fótbolta í mjög góðu liði frekar en að gera ekki neitt,\" sagði Alfreð sem er spenntur fyrir að leika með sænsku meisturunum.

,,Ég held að Helsingbrg sé stærri klúbbur en Lokeren ef eitthvað er. Þeir eru með meira fjármagn og stærri völl og það verður líka gaman að vera í toppbaráttu.\"

Alfreð mun á morgun fara til Mallorca í æfingaferð með Helsingborg en liðið mun dvelja í viku þar. Síðar í mánuðinum leikur liðið leik um meistarar meistaranna áður en sænska deildin hefst um mánaðarmótin.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.