Fotbolti.net
06.04.09 - 16:46
Magnús Már Einarsson

Ade Akinbiyi í MLS deildina (Staðfest)

Ade Akinbiyi í MLS deildina (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ade Akinbiyi, framherji Burnley, hefur gengið í raðir Houston Dynamo í bandarísku MLS deildinni.
Þessi 34 ára gamli framherji ætti að geta byrjað að leika með liðinu um leið og hann fær atvinnuleyfi.

,,Ég var að leita að breytingu. Ég er sigurvegari og ég veit að margir munu benda á aldur minn en ég tel mig eiga mörg góð ár eftir,\" sagði Akinbiyi.

Akinbiyi hefur komið víða við á ferlinum og leikið með ellefu félögum, þar á meðal Gillingham, Bristol City, Wolves, Leicester og Stoke.

Í vetur hefur hann mikið verið á bekknum hjá Burnley og einungis skorað eitt mark í fimmtán leikjum en það kom í sigri á Chelsea í enska deildabikarnum.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.