06.04.09 - 14:00
Hafliði Breiðfjörð
Alexander Söderlund til FH (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Norski framherjinn Alexander Söderlund er genginn í raðir FH en hann kemur á láni frá ítalska félaginu Treviso út þessa leiktíð.
Söderlund kom hingað til lands í siðasta mánuði og æfði með FH-ingum í nokkra daga auk þess að leika æfingaleik við Víking frá Færeyjum.
Hann þótti standa sig svo vel að félagið ákvað að semja við hann og ítalska félagið um að hann leiki hér á landi út þessa leiktíð og það er nú frágengið.
Hann er kominn hingað til lands að nýju og hefur hafið æfingar með FH og vonast er til að félagaskipti hans gangi í gegn nú í vikunni. Hann gæti verið í leikmannahópnum sem mætir Haukum í Lengjubikarnum á fimmtudag gangi félagaskiptin í gegn.
FH liðið er lítið breytt frá síðustu leiktíð. Jónas Grani Garðarsson og Höskuldur Eiríksson eru farnir frá félaginu og Söderlund er sá eini sem hefur komið til liðs við félagið.