Fotbolti.net
06.05.09 - 14:00
Hafliði Breiðfjörð

Ása Dögg Aðalsteinsdóttir í GRV (Staðfest)

Ása Dögg Aðalsteinsdóttir.

Ása Dögg Aðalsteinsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ragnheiður Jónsdóttir

Kvennaboltinn
Ása Dögg Aðalsteinsdóttir markvörður Íslandsmeistara Vals hefur verið lánuð til nýliða GRV í Pepsi-deild kvenna. Þetta staðfesti Gunnar Magnús Jónsson þjálfari GRV í samtali við Fótbolta.net í dag.
Ása Dögg hefur verið aðalmarkvörður Vals allt undirbúningstímabilið en þær Guðbjörg Gunnarsdóttir og Randi Wardum yfirgáfu félagið í vetur.

Félagið fékk svo Maríu B. Ágústsdóttur frá KR í gær og í kjölfarið ákvað Ása Dögg að fara í GRV.

Hún kom til Vals frá HK/Víkingi fyrir tímabilið 2006 og hefur í heildina leikið níu deildarleiki með Val auk þess sem hún hefur leikið í Evrópukeppninni og æfingamótum. Hún er 21 árs gömul.

Hún á að baki 18 leiki með yngri landsliðum Íslands auk þess sem hún hafði leikið 13 leiki með HK/Víking er hún gekk í raðir Vals fyrir tímabilið 2006.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.