06.05.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Sandor Forizs í KA (Staðfest)

Mynd: Austurglugginn/Gunnar

Mynd: Austurglugginn/Gunnar
Ungverski varnarmaðurinn Sandor Zoltan Forizs hefur gengið í raðir KA.
Þessi 32 ára gamli leikmaður þekkir til hjá KA því hann lék með liðinu í fyrstu deildinni árið 2005.
Undanfarin þrjú ár hefur hann hins vegar leikið með KS/Leiftri þar sem hann lék tólf leiki í fyrstu deildinni í fyrra áður en hann hætti hjá félaginu um mitt tímabil. Áður lék Sandor einnig með Leiftri/Dalvík árin 2003 og 2004.
Í vetur reyndi hann fyrir sér hjá Fjarðabyggð og Selfyssingum en núna hefur hann skipt yfir í KA og getur hann leikið með liðinu í fyrstu umferð fyrstu deildarinnar á sunnudag.