06.05.09 - 20:22
Magnús Már Einarsson
Adriano til Flamengo (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Brasilíski framherjinn Adriano hefur gert samning við Flamengo í heimalandi sínu.
Adriano, sem er 27 ára, hætti hjá Inter í mars en hann sagðist þá ætla að taka sér frí þar sem hann væri orðinn leiður á fótboltanum.
Flamengo hefur hins vegar sannfært Adriano um að koma í sínar raðir en hann hóf ferilinn hjá liðinu árið 2000. Hann lék þá í eitt ár með Flamengo áður en hann fór til Evrópu.
Adriano verður formlega kynntur hjá Flamengo á fréttamannafundi hjá félaginu á morgun.

Heimild: Sky