Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 06. maí 2021 23:53
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Cavani bakkaði liðsfélagann upp og hrinti Karsdorp
Mynd: EPA
Edinson Cavani kom liðsfélaga sínum Mason Greenwood til aðstoðar þegar hinn ungi Greenwood lenti í rifrildi við Rick Karsdorp og Gianluca Mancini.

Greenwood og Cavani eru leikmenn Manchester United og þeir Karsdorp og Mancini eru leikmenn Roma. Liðin mættust í Evrópudeildinni á fimmtudagskvöld.

Cavani kom askvaðandi inn í rifrildið og ýtti Karsdorp í burtu frá Greenwood og lét Rómverjann heyra það.

Mancini var eitthvað ósáttur við Greenwood og Kardorp lagði hendur á Englendinginn og ýtti í hann. Cavani var allt annað en ánægður með það og svaraði fyrir liðsfélaga sinn.

Atvikið átti sér stað á 72. mínútu leiksins í stöðunni 2-2. Leikurinn endaði 3-2 fyrir Rómverja en United fer áfram úr einvíginu og í úrslitaleikinn


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner