Fotbolti.net
06.06.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Ciro Ferrara ráðinn þjálfari Juventus (Staðfest)

Ciro Ferrara ráðinn þjálfari Juventus (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ciro Ferrara hefur verið ráðinn þjálfari Juventus en hann hefur gert tveggja ára samning við félagið.
Ferarra stýrði Juventus í síðustu tveimur leikjunum í Serie A eftir að Claudio Ranieri var rekinn í síðast mánuði.

Juventus vann báða leiki sína og í kjölfarið hefur hinn 42 ára gamli Ferrara fengið tækifæri til aðhalda áfram með félagið.

Ferrara hefur verið aðstoðarþjálfari Marcelo Lippi með ítalska landsliðsins en hann mun nú hætta í því starfi.

Á sínum tíma vann Ferrara ítölsku deildina sjö sinnum sem leikmaður með Juventus og þá vann hann einnig Meistaradeildina einu sinni.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.