Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
   lau 06. júní 2026 20:59
Brynjar Ingi Erluson
Senesi búinn í læknisskoðun hjá Tottenham
Mynd: EPA
Argentínski miðvörðurinn Marcos Senesi er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við Tottenham Hotspur. Fabrizio Romano greinir frá þessum tíðindum á X.

Tottenham náði samkomulagi við Senesi fyrir nokkrum vikum eftir að ljóst varð að hann yrði ekki áfram hjá Bournemouth.

Samningur hans við Bournemouth rennur út um mánaðamótin og mun hann í kjölfarið ganga í raðir Tottenham.

Hann stóðst læknisskoðun í dag og skrifaði svo undir fjögurra ára samning við Tottenham.

Varnarmaðurinn hefur spilað með Bournemouth síðustu fjögur ár en áður lék hann með Feyenoord og San Lorenzo. Hann átti stóran þátt í að koma Bournemouth í Evrópudeildina fyrir næstu leiktíð.

Senesi verður annar leikmaðurinn sem Tottenham fær á frjálsri sölu í vikunni á eftir Andy Robertson, sem kom til félagsins frá Liverpool.


Slapp
banner
banner
banner