Fotbolti.net
06.08.08 - 12:20
Magnús Már Einarsson

Yngri bróðir Santa Cruz til Blackburn (Staðfest)

Roque Santa Cruz.

Roque Santa Cruz.

Canon

Mynd: Getty Images

Blackburn hefur fengið Julio Santa Cruz til liðs við sig en þessi 18 ára gamli leikmaður en yngri bróðir Roque Santa Cruz,
Roque Santa Cruz sló í gegn hjá Blackburn á síðustu leiktíð og núna hefur yngri bróðir hans einnig komið til félagsins.

Julio, sem er 18 ára gamall, hefur gert þriggja ára samning og munu félagaskiptin ganga í gegn á næstunni.

Julio lék með Cerro Porteno í Paragvæ en hann hefur verið á reynslu hjá Blackburn í sumar og mun væntanlega vera í varaliði félagsins fyrst um sinn.

,,Ég er mjög ánægður með að vera hér hjá Blackburn, þetta verður ótrúlegt ævintýri fyrir mig,\" sagði Julio við heimasíðu Blackburn.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.