Fotbolti.net
06.08.10 - 08:21
Magnús Már Einarsson

Winston Reid til West Ham (Staðfest)

Winston Reid til West Ham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

West Ham hefur keypt varnarmanninn Winston Reid frá FC Midtjylland í Danmörku en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Þessi 22 ára gamli leikmaður skrifaði undir þriggja ára samning við West Ham.

,,Þetta hafa verið ótrúlegar vikur og það hefur verið mikið að gerast undanfarna daga þannig að ég er bara ánægður með að vera hér núna,\" sagði Reid.

Reid er frá Nýja-Sjálandi en hann skoraði jöfnunarmark liðsins gegn Slóvakíu á HM í sumar.

Reid er fimmti leikmaðurinn sem West Ham fær í sumar en áður hafði félagið krækt í Thomas Hitzlsperger, Pablo Barrera, Frederic Piquionne og Tal Ben Haim.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.