06.08.10 - 11:28
Magnús Már Einarsson
Philipp Degen til Stuttgart á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Stuttgart hefur krækt í hægri bakvörðinn Philipp Degen á láni frá Liverpool en lánssamningurinn er fram á næsta sumar.
Þessi 27 ára gamli Svisslendingur kom frítt til Liverpool frá Borussia Dortmund árið 2008.
Degen hefur hins vegar ekki náð að festa sig í sessi hjá Liverpool en hann hefur einungis leikið sjö leiki með liðinu í ensku úrvalsdeildinni.
Christian Gross, þjálfari Stuttgart, hefur núna krækt í Degen en þeir unnu áður saman hjá Basel.
,,Fyrir mig er þessi lánssamningur frábært tækifæri til að komast aftur í mitt besta form,\" sagði Degen.

Heimild: Sky