06.08.10 - 13:30
Magnús Már Einarsson
1.deild: Hvað er að frétta af Þrótti?

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Ingvi Sveinsson.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir

Þá er komið að liðnum ,,Hvað er að frétta?\" hér á Fótbolti.net en þar kíkjum við á stemninguna hjá liðum í fyrstu, annarri og þriðju deild.
Að þessu sinni er farið í Laugardalinn og stemningin skoðuð hjá Þrótturum.
Ingvi Sveinsson leikmaður liðsins svaraði nokkrum spurningum.
Eldra efni úr \"Hvað er að frétta?\"

Hvernig er stemningin hjá Þrótti?
Stemningin í dalnum er virkilega góð, sérstaklega góð í dag þar sem við náðum þremur stigum í gær. Við erum þá búnir að vinna síðustu þrjá leiki. Erum líka á fínu róli á æfingum. Dusan er reyndar að missa sig í “trixunum”, Andrés er svo að vinna að nýju grínprógrammi inn í klefa og Elli kemur með ferska “playlista” á hverri einustu æfingu. Nýjar og nýjar púpur eru að mæta og láta finna fyrir sér. Þannig að það er líf og fjör í Þrótti.
Ertu ánægður með gengi liðsins að undanförnu?
Síðustu þrír leikir hjá okkur hafa verið flottir. Sigur á móti HK, Fjarðabyggð og Fjölni. Þar á undan var stemmningsleikur á móti KR í bikarnum. Svo er hörku leikur við Leikni eftir viku.
En staða okkar í deildinni er auðvitað ekki nógu góð. Við féllum úr Pepsi deildinni síðasta haust og ætluðum að sjálfsögðu að gera betur og standa okkur betur í 1.deildinni.
En við höfum hreinlega verið slakir í of mörgum leikjum í sumar. Svo eru nokkrir leikir sem við höfum gefið frá okkur á síðustu metrunum og er það sérstaklega súrt. Þannig að við grátum nokkur stig en það þýðir auðvitað ekkert, bara djöflast í næstu leikjum.
Hver eru markmið ykkar það sem eftir er tímabils?
Klárlega að gera betur – sýna meira en við höfum gert og klára sumarið með sæmd. Við skuldum okkur sjálfum það, þjálfaranum og stuðningsmönnunum. Við vitum að við eigum meira inni. Það eru 7 leikir eftir og fullt af stigum í boði. Við látum það ekki gerast að fara inn í veturinn með slaka frammistöðu í síðustu leikjunum.
Voru væntingarnar of miklar fyrir sumarið?
Já og nei. Þrátt fyrir miklar breytingar á leikmannahópnum frá árinu áður þá tókst okkur að manna virkilega flottan hóp, fengum marga sterka leikmenn og með tilkomu Palla og Ingvars í þjálfarateymið mátti alveg búast við góðu sumri.
Hvað hefur komið þér á óvart í fyrstu deildinni í sumar?
Það hlýtur að vera hversu jafnt deildin er að spilast. Með einum sigri eða einu tapi getur margt breyst á töflunni. Mér sýnist allir geta unnið alla. Það er ekkert eitt lið að stinga of langt af og það er ekkert eitt lið sem á heima á botninum.
Einnig finnst mér frábært að sjá hve margir ungir leikmenn eru að koma upp í deildinni. Margir að taka á sig mikla ábyrgð. Meðalaldurinn er að færast neðar, á reyndar ekki við um okkur, en það eru strákar þrettán árum yngri að stinga mann af!
Hvaða lið heldur þú að verði að berjast um að komast upp í Pepsi-deildina?
Það getur allt gerst í lokin. Eins og ég sagði þá er deildin afar jöfn og held ég að það geti ráðist í síðustu umferðinni hvaða lið fari upp. Það væri líka bara skemmtilegt. En Þór er á góðri siglingu og með þeim á toppnum eru Víkingur og Leiknir. Eigum við ekki að segja að þessi lið verða í mestu baráttunni, og svo stefnum við á að lauma okkur upp töfluna.
Komdu með eina skemmtilega staðreynd um félagið sem fólk veit ekki um:
Fólk er kannski klárt á þessum: Félagið varð 61 árs í gær. Var stofnað 5. ágúst árið 1949. Tveir leikjahæstu leikmenn félagsins eru þeir Páll Einarsson, sem er einmitt þjálfari í dag, og Hallur Hallsson fyrirliði. Að lokum má nefna að meistaraflokkurinn er núverandi Íslandsmeistari í reitarbolta (staðfest).
Eitthvað að lokum?
Vill bara þakka okkar tryggu stuðningsmönnum fyrir stuðninginn. Nokkrir með fulla mætingu á leiki sumarsins. Það finnst mér virkilega flott.
Verð líka að minnast á liðsstjórana okkar þrjá, þá Palla, Auðunn og Sigga. Þeir eru búnir að færa undirbúningin fyrir leiki á nýtt “level”.
Doddi, þú tekur svo vel á móti okkur eftir viku!
Sjáumst svo bara á vellinum í ágúst og september.
Lifi Þróttur.