Fotbolti.net
06.09.08 - 11:20
Hafliði Breiðfjörð

Walter Lopez til West Ham (Staðfest)

Walter Lopez til West Ham (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Þrátt fyrir að hafa ekki knattspyrnustjóra í starfi og að félagaskiptaglugginn sé lokaður fékk West Ham United nýjan leikmannahóp til liðs við sig í gær þegar Walter Lopez, 22 ára gamall landsliðsmaður frá Úrúgvæ gekk í raðir félagsins.
Lopez sem er vinstri bakvörður á að baki þrjá landsleiki fyrir Úrúgvæ en han kemur til West Ham á frjálsri sölu eftir að hafa ákveðið að yfirgefa River Plate í sumar.

,,Walter er mjög sókndjarfur bakvörður sem getur farið fram,\" sagði Kevin Keen sem stýrir liðinu tímabundið þar til knattspyrnustjóri verður ráðinn.

Lopez sagði að hann hafi alltaf horft á úrvalsdeildina og var mjög ánægður með að fá að spila fyrir West Ham. Hann er fjórði leikmaðurinn sem kemur til félagsins í sumar, kemur á eftir Valon Behrami, Balint Bajner og lánsmanninum Jan Lastuvka.

Þar sem hann er ekki bundinn neinu félagi mátti hann koma til West Ham utan félagaskiptagluggans.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.